Fara í efni
Mannlíf

Ævintýragarðinum lokað fyrir veturinn

Ævintýragarðinum við Oddeyrargötu 17 verður lokað frá og með mánudeginum 7. september eftir gott sumar. Garðurinn hefur verið opinn gestum í allt sumar og aðsóknin verið góð, þó heldur færri hafi lagt leið sína þangað en í fyrra.

Hreinn Halldórsson alþýðulistamaður, sem hefur skapað persónurnar sem prýða garðinn, er ánægður með sumarið og sérstaklega með umgengni gesta. Þrátt fyrir að aðgangur sé ókeypis og ekkert eftirlit sé með svæðinu hefur fólk gengið vel um og jafnframt virt opnunartímann, sem hefur verið frá klukkan 10 til 20.

Ævintýrapersónurnar í garðinum við Oddeyrargötu fara bráðum inn í hús til vetrardvalar.

Nú taka prinsessur, prinsar, drottningar, dvergar og aðrar persónur garðsins sér vetrarfrí. Þær fara inn í hús til vetrardvalar þar sem næstu mánuðir verða nýttir til að fara yfir búnaðinn, laga það sem hefur látið á sjá og undirbúa garðinn fyrir næsta sumar. „Trúlega heimtar sumt af þessu kóngafólki nýjar flíkur fyrir næsta sumar eða nýjar kórónur enda þetta fólk vant því að láta alþýðumanninn snúast í kringum sig,“ segir Hreinn.

Ein persóna verður þó eftir úti

Skessan Króknefja fær ekki að fara inn í hlýjuna til vetrardvalar heldur verður úti og gætir Ævintýragarðsins yfir veturinn. Hún er vön því að standa úti í öllum veðrum og mun því bíða þar þolinmóð eftir því að garðurinn verði opnaður á ný næsta sumar. Króknefja lítur reyndar á sig sem drottningu fjallanna, þótt mannfólkið virðist ekki alveg deila þeirri skoðun. Hún fær engu að síður að ráða ríkjum í Ævintýragarðinum næstu mánuði.