Að standa sig betur en maður heldur
Ég sat með einstakling í markþjálfun fyrir nokkru síðan sem sagði við mig: „Mér finnst ég vera fastur. Mér líður stundum eins og ég hafi ekkert komist áfram.“
Þannig hefst heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Pistillinn ber yfirskriftina Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?
Hrafnhildur heldur áfram, eftir upphafssetninguna: Hann sá alla hlutina sem hann átti eftir að gera og það dró úr honum kraftinn að hugsa til þess hversu leiðin í land væri ennþá svo löng. Þegar við fórum að skoða þetta saman kom hins vegar önnur mynd í ljós. Hann hafði farið í gegnum breytingar sem hann hefði ekki trúað að hann gæti tekist á við. Hann hafði staðið af sér erfiða tíma, lært að setja mörk, tekið ákvarðanir sem kröfðust hugrekkis og byrjað að hlusta betur á sjálfan sig.
Pistill Hrafnhildar: Hvað ef þú ert að standa þig betur en þú heldur?