Á þetta að vera fyndið? Heimamenn stíga á svið
Fjórir Norðlendingar með fjölbreyttan bakgrunn ætla að bjóða upp á uppistandið „Á þetta að vera fyndið?“ á LYST í Lystigarðinum föstudagskvöldið 13. mars. Sýningin sem er í senn frumraun, tilraun og skemmtun verður mögulega upphaf að meiri uppistandsmenningu á Akureyri.
Þau sem að skemmtuninni standa eru Svava Ólafsdóttir, Snæfríður Ingadóttir og Ingimar Baddi Ingimarsson Eydal, sem öll eru nýgræðingar þegar uppistand er annars vegar. Reynsluboltinn í hópnum er Arnór Daði Gunnarsson, sem hefur fengist við uppistand í níu ár og komið fram á ýmsum stöðum hérlendis. Hugmyndin að kvöldinu segja þau að hafi í raun orðið til í óformlegu spjalli á Akureyri milli jóla og nýárs. Þar barst uppistand í tal og gamlir draumar og í kjölfarið var ákveðið að láta slag standa og láta draum sem lengi hafði kraumað rætast. Þau þrjú sem eru ný í uppistandinu kynntust á spunanámskeiði hjá MAk í haust og segja að þar hafi kviknað þor, leikgleði og löngun til að prófa eitthvað nýtt.
Leynireglan að hafa gaman sjálfur
Þótt uppistand sé nýtt form fyrir Svövu, Snæfríði og Badda, eru þau öll vön því að koma fram. Snæfríður hefur starfað við fjölmiðla í áratugi og þreytti frumraun sína sem húlla-uppistandari á Græna hattinum í nóvember. Svava hefur mikla reynslu af fyrirlestrahaldi og þá hefur hún stigið á svið með áhugaleikfélagi, og það hefur Baddi líka gert. Þau viðurkenna þó að uppistand sé annað og því fylgi ákveðin pressa að auglýsa uppistand þar sem ætlast er til að fólk hlæi.
Arnór Daði, sem hefur staðið á sviði sem uppistandari í nær áratug, segir stressið alltaf fylgja, jafnvel eftir mörg ár. „Leynireglan er einföld: að hafa gaman sjálfur. Og þegar fólk er komið til að hlæja, þá gerist það yfirleitt,“ segir hann en viðurkennir að hann hafi alveg lent í erfiðum áhorfendum sem ekki hafi hlegið. Hópurinn er þó viss um að það gerist ekki á LYST – ekki nema föstudagurinn þrettándi leiki þau grátt! Val á dagsetningu, föstudeginum þrettánda, er tekið sem léttu gríni. „Ef eitthvað klikkar, þá er það pottþétt deginum að kenna,“ segja þau hlæjandi.
Frítt tilefni til hláturs
Þegar spurt er um hvað þau ætli sér að tala, kemur í ljós að umfjöllunarefni kvöldsins verður fjölbreytt og í takt við hugðarefni hvers og eins; þó séu ólík og á mismunandi aldri. Spurð hvort Akureyringar séu opnir fyrir uppistandi eru þau sammála um að stundum þurfi aðeins að hrista fólk upp. „Það getur verið erfitt að fá fólk út úr húsi til að prófa eitthvað nýtt,“ segir Arnór, „en þegar það mætir, þá skemmtir það sér vel.“ Aðgangur er ókeypis á „Á þetta að vera fyndið?“ enda vilja flytjendurnir gera fólki auðvelt að mæta og prófa eitthvað nýtt. Svo veitir fólki heldur ekki af smá hlátri milli jóla og páska, segja þau.
Uppistandið er eins og áður segir á LYST, föstudaginn 13. mars og hefst kl. 20.