5 ár af handavinnu, hlýju og samfélagi
Það er eitthvað sérstakt við andrúmsloftið í versluninni Garn í gangi á Akureyri. Þar er ekki bara verið að selja garn heldur sest fólk þar niður, spjallar og hjálpast að við að skapa og leysa handavinnuvandamál. Verslunin fagnar fimm ára afmæli sínu um þessar mundir en eigendurnir, Sveina Björk Jóhannesdóttir og Íris Eggertsdóttir, hafa markvisst byggt upp rými þar sem handavinna er farvegur fyrir samfélag, tengsl og vellíðan.
„Einn viðskiptavinur sagði við mig: „Mér líður alltaf eins og ég sé uppáhaldskúnninn ykkar.“ Það segir í raun allt sem segja þarf um það sem við höfum verið að reyna að skapa hér,“ segir Sveina þegar hún er spurð að því hvað hún sé ánægðust með á þessum fimm árum sem verslunin hefur verið í Gilinu.
Vöruúrvalið í Garni í gangi er afar fjölbreytt en þar t.d. að finna efni í bútasaum, útsaumsvörur, garn, prjóna, tölur, rennilása og ýmsilegt fleira. Þó búðin sé ekki stór þá leynist þar ótrúlega margt enda á verslunin stóran aðdáandahóp og fastakúnna bæði innanlands og erlendis. Mynd: SNÆ
Notalegt verkefni sem óx hratt
Verslunin Garn í gangi á Akureyri var opnuð í miðjum covid-faraldri af Sveinu og Ragnheiði Jakobsdóttur. Verslunin átti upphaflega að vera lítið og notalegt verkefni með opnunartíma nokkra daga í viku. En eftirspurnin lét ekki á sér standa og verslunin óx hratt. Fljótlega var Íris Eggertsdóttir ráðin í fullt starf og síðar varð hún meðeigandi Sveinu þegar Ragnheiður dró sig úr rekstrinum.
- Fyrri umfjallanir akureyri.net um Garn í gangi:
„Garn í gangi“ stendur undir nafni
Garn í gangi orðið að verslun í Listagilinu

Sveina árið 2020 þegar hún byrjaði að selja garn á ganginum heima hjá sér. Árið 2021 varð Garn í gangi síðan að sérverslun í Listagilinu á Akureyri. Mynd: Skapti
Samfélag handavinnuunnenda
Frá upphafi hefur markmið Garns í gangi ekki eingöngu verið sala á garni, heldur að skapa samfélag þar sem allir eru velkomnir. Það hefur tekist svo vel að verslunin er orðin eins konar samkomustaður handavinnufólks á Akureyri. „Hér er fólk sem kemur reglulega bara til að setjast niður, prjóna, hekla eða spjalla,“ segir Sveina. Á miðvikudagsmorgnum er alltaf haldinn handavinnuhittingur þar sem allir eru velkomnir, óháð því hvort þeir kaupi garn eða aðrar vörur í versluninni eða ekki. Íris, sem er á hlaupum um verslunina að sinna erlendum ferðamönnum sem vilja kaupa garn, stingur inn í samtalið að einu sinni hafi franskur skiptinemi eiginlega haft fast aðsetur í versluninni. Hann vildi endilega prjóna lopapeysur á alla í fjölskyldunni sinni og taka með heim. Húsmóðirin sem hann bjó hjá kenndi honum að fitja upp en svo sat hann við prjónaskapinn í versluninni og náði markmiði sínu.

Ekki er óalgengt að sjá einhvern sitja í sófanum í versluninni og sinna handavinnu. Sérstakir handavinnumorgnar eru í verslunni á miðvikudögum og allt handavinnufólk er velkomið. Sveina og Íris rétt náðu að tylla sér í sófann fyrir myndatöku en meðan blaðamaður var staddur í versluninni var þar stanslaust rennerí af útlendingum sem vildu kaupa garn í prjónaverkefni. Þá er ekki óalgengt að erlendir ferðamenn komi við í versluninni til þess að sýna hvað þeir prjónuðu úr garninu sem þeir keyptu hjá þeim í sinni síðustu ferð til Íslands. Mynd: SNÆ
Innblástur og tengsl út fyrir landsteinana
Viðskiptavinir verslunarinnar eru bæði heimafólk og ferðamenn en á föstudögum hafa þær stöllur opið klukkutíma lengur svo helgargestir nái að versla og á sumrin er boðið upp á sunnudagsopnun, enda ekki vanþörf á þar sem gestir skemmtiferðaskipanna sækja mikið í búðina. Þá stendur verslunin einnig fyrir vinsælum handavinnu- og prjónaferðum erlendis í samstarfi við ferðaskrifstofuna Verdi. Í febrúar er förinni heitið til Suður-Englands með yfir 40 konur og í haust er stefnt á ferð til Danmerkur. Í ferðum sem þessum er farið á stórar handverkssýningar og þátttakendur geta sótt handavinnunámskeið og fyrirlestra sem veita bæði innblástur og tengsl við það nýjasta í handavinnuheiminum. Þá má sjá stöllurnar reglulega á veraldarvefnum því Garn í gangi er með sína eigin Youtube rás þar sem þær setja reglulega inn skemmtilega pistla um ýmislegt sem tengist þeirra prjónaverkefnum, vöruúrvali í versluninni o.fl.
Inni eða útipeysa?
Aðspurðar hvað sé vinsælast að prjóna um þessar mundir nefnir Sveina að ungbarnadót og peysur séu alltaf vinsælar. Þá segir hún að fólk sé svolítið að uppgötva að prjónaðar peysur þurfi ekki allar að vera hlýjar. Það er hægt að prjóna peysur og sumarföt úr léttari efnum eins og alpakkaull og silki. „Við spyrjum viðskiptavini oft: Á þetta að vera innipeysa eða útipeysa? Þá veljum við garnið út frá því.“ Þá segir Sveina að það sé sérstaklega ánægjulegt hversu margt ungt fólk er farið að stunda handavinnu. „Ungu stelpurnar sem vinna hjá okkur eru allar á kafi í prjóni, hekli og útsaumi,“ segir hún stolt.
Þótt reksturinn hafi vaxið hratt segja þær stöllur að draumurinn sé ekki endilega að stækka meira í fermetrum. Að fimm árum liðnum sjá þær verslunina enn fyrir sér í Gilinu enda segja þær staðsetninguna einstaka og plássið er vel nýtt. „Þetta snýst frekar um að vera sveigjanleg, laga sig að þörfum fólks og halda í þessa stemningu sem við höfum náð að byggja hér upp, frekar en að stækka verslunina,“ segir Sveina og Íris tekur undir það. Þess má að lokum geta að í tilefni fimm ára afmælisins þá er 20% afsláttur af nær öllum vörum í búðinni í fjóra daga eða út sunnudag.

Í versluninni má sjá margar fullprjónaðar peysur. Þær eru þó ekki til sölu heldur aðeins til sýnis en Sveina segir að Garn í gangi sé eins og Ikea að því leyti að fólk getur séð útkomuna en verður sjálft að setja hlutinn (prjóna) saman.