Fara í efni
Mannlíf

2000 manna skátaþorp verður til á Hömrum

Myndir: Þorgeir Baldursson

Landsmót skáta verður sett við hátíðlega athöfn í kvöld að Hömrum, útilífsmiðstöð skáta á Akureyri. Um 2000 skátar víðs vegar af landinu eru saman komnir á Akureyri af því tilefni og að auki eru mættir skátar frá 10 öðrum löndum til að taka þátt.

Undirbúningur hefur verið langur og strangur enda má segja að heilt þorp rísi á svæðinu fyrir skátamótið; þar er bæði matvörubúð og minjagripabúð svo eitthvað sé nefnt. Mótsgestir búa vitaskuld á svæðinu en þar rekur félag í eigu skátafélagsins Klakks á Akureyri glæsilegt tjaldsvæði.

Landsmótið stendur yfir allt til sunnudags. Það fer að mestu leyti að Hömrum en hluti dagskrárinnar verður þó annars staðar á Akureyri þannig að bæjarbúar gætu orðið varir við skáta á ferli.

Skátum hefur verið stefnt á Landsmót á tveggja ára fresti en ákveðið hefur verið að héðan í frá líði þrjú ár á milli móta og það næsta verður því árið 2029. Síðasta Landsmót var árið 2024 en það fór síðast fram á Hömrum 2014. Nú orðið eru Landsmótin aðeins haldin á tveimur stöðum, til skiptis að Hömrum og við Úlfljótsvatn en svæðið, sem er skammt sunnan Þingvallavatns, er í eigu Bandalags íslenskra skáta.

Þorgeir Baldursson leit við á Hömrum í gær með myndavélina.