Mannlíf
100 ára „afmælisbarn“ við Oddeyrargötu
29.06.2026 kl. 06:00
Í upphafi þessa árs markaði Arnór Bliki Hallmundsson, höfundur pistlanna geysivinsælu Hús dagsins, sér þá stefnu, að taka fyrir hús á Akureyri og nágrenni, sem eiga stórafmæli á þessu ári, 100 ára og eldri.
„Á þessu tæpa hálfa ári eru nú komnar greinar um nokkur hús 110 til 140 ára, þar sem uppfærslu var þörf. Ekki eru þetta þó öll „stórafmælishús“ bæjarins, sum þeirra hafa verið tekin hér fyrir í ítarlegu máli á síðustu misserum. Nú er hins vegar komið að þeim húsum, sem verða 100 ára í ár og þau eru býsna mörg, greinarhöfundi reiknast til, að þau séu um og yfir 20,“ segir Arnór Bliki í nýjum pistli – þar sem hann fjallar um fyrsta 100 ára „afmælisbarnið“, Oddeyrargötu 26.
- Pistill dagsins: Oddeyrargata 26 – 100 ára hús I