Fara í efni
Mannlíf

10 ruslaverur Jonnu á Akureyri í sumar

Ruslaverurnar eru mikið myndaðar af ferðamönnum á Akureyri. Þær hafa verið í þvotti og viðgerð eftir vetrardvala en eru nú að birtast hver af annarri á völdum ruslatunnum í miðbænum og Innbænum. Mynd: Jonna

10 ruslaverur munu gleðja gesti og gangandi á Akureyri í sumar. Þetta er sjötta sumarið sem ruslaverurnar lífga upp á bæinn en þær eiga að hvetja fólk til þess að láta ruslið rata rétta leið.

Listakonan Jonna Jónborg Sigurðardóttir hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur við að þrífa verurnar, skerpa liti og gera við þær klárar fyrir sumarvertíðina þar sem þær munu standa vaktina í öllum veðrum á völdum rusladöllum í bænum. „Þetta er heilmikið verk og ég hef bara verið að bíða eftir því að þvottavélin mín springi,“ segir Jonna.

Þessi mávur  verður á Andapollinum í sumar,  líklega í góðum félagsskap annarra máva sem pollinn sækja. Mynd: Jonna 

Mávur ný ruslavera við Andapollinn

Verurnar eru nú að birtast hver af annarri eftir vetrardvala en Minjasafnið leigir sjö verur af Jonnu í ár eins og í fyrra og munu þær varða leiðina úr miðbænum og inn á Minjasafn. Akureyrarbær styrkti svo Jonnu um aðrar þrjár; eina við Listasafnið, eina ofarlega í Gilinu og eina við Andapollinn. Ruslaverurnar við Andapollinn og við Listasafnið eru báðar nýjar en veran við Andapollinn er mávur. Ég hef áður verið með fugla við Andapollinn og mér fannst bara passa að hafa máv þar því það er svo mikið af þeim, segir Jonna. Aðspurð hvort hún sé ekkert hrædd um að mávurinn dragi að fleiri máva segir hún að það sé allt í lagi. „Mávarnir þurfa líka að borða.“