Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Guðmundur Ómarsson

Guðmundur Ómarsson er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsraðarinnar 10 bestu.

„Fyrsti viðmælandi minn í tíundu seríu er Guðmundur Ómarsson. Hann hefur brallað ýmislegt en er hvað þekktastur fyrir fyrirtæki sitt Eldhaf sem hann stofnaði á sínum tíma og hefur nú selt að fullu,“ segir Ásgeir í kynningu. „Hann á og rekur isbúðina í miðbæ Akureyrar og hannar öpp fyrir Apple svo eitthvað sé nefnt.“ Nú séu breyttir tímar hjá fjölskyldunni sem ætli að flytjast búferlum til Spánar. „Hann segir okkur frá því þegar hann hætti að drekka og hvernig líf hans breyttist. Hann var nær dauða en lífi vegna myglu og hefur ekki náð sér að fullu síðan. Hann er með 10 laga rokklista en hann segist vera mjúkur inn á milli á sínum eldri árum samt ekki nema rétt rúmlega fertugur. Frábært spjall við Gumma í Eldhafi. Hann segir okkur söguna sína alla.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn