- 274 stk.
- 04.08.2026
Laugardagur 1. ágúst 2026 – Fjallahlaupið Súlur vertical fór fram í dag og tóku á sjötta hundrað manns þátt. Hægt var að velja um fjórar mislangar og krefjandi vegalengdir. 22 hlauparar lögðu af stað í lengstu vegalengdina, Gyðjuna 100 km hlaup með samanlagt 3600 m hækkun. Lagt er upp frá Goðafossi, hlaupið yfir í Fnjóskadal og þaðan yfir Vaðlaheiði og leirurnar inn í Kjarnaskóg, upp á bæjarfjallið Súlur, inn á Glerárdal og síðan niður í miðbæ Akureyrar. Um 360 manns hlupu 19 km, tæplega 100 hlupu 28 km og 55 hlupu 43 km. - Ármann Hinrik tók langflestar myndanna en Skapti Hallgrímsson fáeinar við endamarkið í göngugötunni.