- 47 stk.
- 18.02.2026
18. febrúar 2025 – Öskudagurinn rann upp að vanda að loknum sprengidegi sem hafði leyst bolludag af hólmi. Allt hefðbundið í þessari miklu hátíðarviku, í höfuðstað Norðurlands; í dag skutust börn á milli fyrirtækja, sungu og þáðu víðast hvar gotterí að launum. Boðið var upp á skemmtiatriði í verslunarmiðstöðinni á Glerártorgi og þar var „kötturinn“ síðan sleginn úr tunnunni. Þorgeir Baldursson var á ferð um bæinn í morgun með með myndavélina.