- 158 stk.
- 28.07.2026
27. júlí 2026 – Besta deildin í knattspyrnu, KA - Þór 0:0 í 16. umferð. Fyrsti leikur á nýjum gervigrasvelli vestast og nyrst á KA-svæðinu. Áhorfendastúka við völlinn notuð í fyrsta skipti. Margir stuðningsmanna Þórs „hituðu upp“ í félagsheimilinu Hamri áður en haldið var upp á KA-svæði, en stuðningsmenn KA hittust í íþróttahúsi félagsins og komu sér í gírinn áður en haldið var út á völl. - Barátta, spenna og stemning en mörkin vantaði, var fyrirsögn á umfjöllun Víðis Sigurðssonar um leikinn á akureyri.net.