- 29 stk.
- 01.08.2023
31. júlí 2023 – Kýrin Edda, hið magnaða listaverk Beate Stormo, flutti að heiman í dag, eins og listakonan orðaði það við Akureyri.net. Beate smíðaði kúna á hlaðinu heima í Kristnesi en Finnur Aðalbjörnsson verktaki og hans menn sóttu Eddu í dag og fluttu inn að Saurbæ, þar sem kýrin mun standa um ókomna tíð sem tákn Eyjafjarðarsveitar, þessa mikla mjólkurframleiðsluhéraðs. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson