- 80 stk.
- 16.11.2026
16. nóvember 2026 – Tilfinningaþrungin kveðjustund á köldum en fallegum mánudegi; 113. og síðasti leikur Arons Einars Gunnarssonar með landsliði Íslands, lokaleikur í C-deild Þjóðadeildar Knattspyrnusambands Evrópu: Ísland - Lúxemborg 3:0. Aron, sem jafnaði landsleikjamet Birkis Bjarnasonar í þessum síðasta leik, byrjaði á varamannabekknum en kom inn á þegar tæpur hálftími var eftir og bar fyrirliðabandið eftir að Orra Steini Óskarssyni fyrirliða var skipt út af rúmum 10 mínútum fyrir leikslok. Lengst af landsliðsferlinum lék Aron með númerið 17 á bakinu en í fyrsta leiknum, gegn Hvíta-Rússlandi (sem nú kallast Belarús) 2. febrúar 2008 á Möltu, var hann í búningi númer 6 og aftur í fyrsta A-landsleiknum sem hann tók þátt í hér á landi, gegn Færeyingum í Kórnum 16. mars 2008. Í lokaleiknum var keppnistreyja Arons Einars hins vegar númer 14 – hann óskaði eftir að leika í þeim búningi til minningar um systur sína, Tinnu Björgu Malmquist, sem lést langt um aldur fram árið 2023, aðeins fertug að aldri. Afmælisdagur Tinnu heitinnar var 14. ágúst. Myndir: Skapti Hallgrímsson