- 34 stk.
- 29.10.2026
Ekki eru allir nemendur Tónlistarskólans á Akureyri komnir á þann aldur að geta gengið, hvað þá sungið eða leikið á hljóðfæri. Í tónlistartímunum Krútttónó og Smátónó eru nemendurnir á aldrinum fjögurra mánaða og upp í þriggja ára gamlir, en um er að ræða tónlistarstundir þar sem foreldrar og börn syngja, leika og njóta tónlistar saman. Myndirnar úr tíma í Krúttóno þar sem börnin voru frá fjögurra til sjö mánaða. Myndir: Skapti Hallgrímsson