- 138 stk.
- 14.03.2026
12. mars 2025 – Mikið gekk á í Íþróttahöllinni á Akureyri þegar Þór og KA mættust í lokaumferð efstu deildar karla í handknattleik. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið og hafði upp á allt að bjóða sem prýðir alvöru grannaslag – stappfullt hús háværra áhorfenda, markvörslur á báða bóga, mistök af öllu tagi, hörkubaráttu, pústra, rautt spjald... og háspennu allan tímann. Svo fór að lokum að leikurinn endaði með jafntefli, 31:31, sem gagnaðist hvorugu liðinu í baráttunni um betri stað í stöðutöflunni. Myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson