Fara í efni
Íþróttir

Vanda endurkjörin formaður KSÍ

Sævar Pétursson og Vanda Sigurgeirsdóttir. Sævar birti myndina á Twitter eftir að frambjóðendurnir hittust fyrir tilviljun á dögunum í Hamri, félagsheimili Þórs, þar sem Vanda var á leið á súpufund og Sævar á útleið af öðrum fundi.

Vanda Sigurgeirsdóttir, sem gegnt hefur formennsku í Knattspyrnusambandi Íslands síðan á aukaþingi síðastliðið haust, var endurkjörin formaður á ársþingi sambandsins í dag. Kosið var á milli hennar og Sævars Péturssonar, framkvæmdastjóra KA. Niðurstaðan í kjörinu var kynnt rétt í þessu: Vanda hlaut 105 atkvæði – 70,47% – en Sævar 44 atkvæði – 29,53%.