Fara í efni
Íþróttir

Úrslitakeppnir, umspil og Besta deild karla

Vikan fram undan býður upp á alls konar spennandi viðureignir. Úrslitakeppni og umspil í blaki, handbolta og körfubolta og svo styttist í upphaf Bestu deildar karla í knattspyrnu. Bæði blaklið KA verða í eldlínunni í vikunni, kvennalið Þórs í körfubolta og karlalið KA í handbolta sömuleiðis. Bæði karlalið Akureyrar í knattspyrnu hefja leik í Bestu deildinni á sunnudag.

MÁNUDAGUR 6. APRÍL - blak, körfubolti, handbolti

Úrslitakeppni Unbroken-deildar kvenna í blaki heldur áfram. KA vann Völsung í fyrsta leik undanúrslitanna, 3-1, á Akureyri í liðinni viku. Í dag mætast liðin á Húsavík.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    Undanúrslit, leikur 1
    Íþróttamiðstöðin á Húsavík kl. 14
    Völsungur - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Vinna þarf tvo leiki í einvíginu til að fara í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. KA getur því komið sér áfram í úrslit með því að sigra Völsung í dag. Hin viðureignin er á milli HK og Aftureldingar. HK vann deildarmeistaratitilinn, en tapaði 2-3 fyrir Aftureldingu í fyrsta leik.

Ef Völsungur vinnur á Húsavík í dag verður oddaleikur liðanna í KA-heimilinu fimmtudaginn 9. apríl. 

- - -

Þór tekur á móti Fjölni í þriðja leik liðanna í umspili 1. deildar og Bónusdeildar kvenna í körfubolta í dag. Leikurinn er í undanúrslitum umspilsins og hefur Fjölnir þegar unnið fyrstu tvo leikina. Lokatölur á Akureyri í fyrsta leik urðu 71-80 og Fjölnir vann annan leikinn í liðinni viku í Grafarvoginum 95-90. Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaviðureign umspilsins. Þór verður því að vinna leikinn í kvöld til að eiga möguleika á sigri í einvíginu, en hefur lokið keppni ef liðið tapar. 

  • Bónusdeild/1. deild kvenna í körfubolta
    Umspil, undanúrslit, leikur 3
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
    Þór - Fjölnir
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Hin viðureignin í umspilinu er á milli Hamars/Þórs og Selfoss. Hamar/Þór endaði í næstneðsta sæti Bónusdeildarinnar, en Selfoss í 4. sæti 1. deildar. Hamar/Þór er 2-0 yfir í einvíginu.

- - -

Undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik hefjast í kvöld. KA sækir Val heim að Hlíðarenda. KA vann ÍBV 2-0 í átta liða úrslitunum og hefur því fengið góða hvíld áður en átökin við deildarmeistarana hefjast. Valur vann HK einnig 2-0 og hvíldin því reyndar sú sama hjá báðum liðum.

Valur endaði deildarkeppnina í efsta sætinu með 34 stig, en KA varð í 5. sæti með 27 stig.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Undanúrslit, leikur 1
    N1 höllin að Hlíðarenda kl. 18.30
    Valur - KA
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Leikir þessara liða í deildinni enduðu báðir með fimm marka heimasigri. KA vann 33-28 á Akureyri í október, en Valur vann 36-31 á sínum heimavelli í febrúar.

ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL - blak

Annar leikur KA og Aftureldingar í undanúrslitum Unbroken-deildar karla í blaki verður í Mosfellsbænum í dag. KA endaði í 2. sæti deildarinnar og hóf því undanúrslitin á heimaleik gegn Aftureldingu í liðinni viku, en Mosfellingar gerðu sér lítið fyrir og unnu í oddalotu, niðurstaðan 2-3 (25-19, 15-25, 25-17, 20-25, 11-15). KA komst tvívegis yfir í viðureigninni, en Mosfellingar jöfnuðu og unnu að lokum. 

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Undanúrslit, leikur 2
    Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 18
    Afturelding - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Vinna þarf tvo leiki til að komast áfram í úrslitaeinvígið. Það kemur því ekkert annað til greina fyrir KA en að vinna til að knýja fram oddaleik. Takist það mætast liðin í oddaleik á Akureyri föstudaginn 10. apríl.

FIMMTUDAGUR 9. APRÍL - handbolti, mögulega blak

Önnur viðureign KA og Vals í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik er á dagskrá á fimmtudag. Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígi, en hin viðureign undanúrslitanna er á milli FH og Hauka.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Undanúrslit, leikur 2
    KA-heimilið kl. 19
    KA - Valur
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

- - -

Ef Völsungur vinnur KA í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Unbroken-deildar kvenna í blaki á annan í páskum mætast liðin í oddaleik í KA-heimilinu á fimmtudag kl. 20.

FÖSTUDAGUR 10. APRÍL - mögulega blak

Ef KA vinnur Aftureldingu í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Unbroken-deildar karla í blaki á annan í páskum er oddaleikur á dagskrá í KA-heimilinu á föstudag kl. 19.

SUNNUDAGUR 12. APRÍL - fótbolti

Keppni í Bestu deild karla í knattspyrnu er að hefjast. Akureyrarliðin hefja leik sunnudaginn 12. apríl, en opnunarleikur mótsins er föstudaginn 10. apríl á milli Víkings og Breiðabliks. KA byrjar mótið á heimaleik, en fyrsti leikur Þórs í efstu deild frá 2014 verður gegn Val að Hlíðarenda.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Greifavöllurinn kl. 17
    KA - Stjarnan
  • N1 völlurinn að Hlíðarenda kl. 17
    Valur - Þór