Fara í efni
Íþróttir

Unnur Ómarsdóttir semur við KA/Þór

Mynd af heimasíðu KA

Handboltakonan Unnur Ómarsdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA/Þór og mun því leika með liðinu á komandi tímabili. Unnur sem er uppalin hjá KA/Þór snýr því aftur heim. Þetta kemur fram á heimasíðu KA í dag.

Þar segir: „Unnur sem er þrítug og leikur í vinstra horni kemur norður frá liði Fram en þar áður lék hún með Gróttu. Með Fram og Gróttu hefur Unnur unnið allt sem hægt er að vinna og ljóst að koma hennar mun styrkja okkar lið töluvert í baráttunni í Olísdeildinni enda verið einn besti hornamaður deildarinnar undanfarin ár.

Þá lék Unnur einnig með liði Skrim í Noregi tímabilið 2014-2015 auk þess sem hún hefur leikið 29 landsleiki fyrir Íslands hönd og gert í þeim alls 28 mörk. Þar áður lék hún með öllum yngrilandsliðum Íslands.

Eins og fyrr segir er Unnur uppalin hjá KA/Þór og tók snemma fyrstu skrefin í meistaraflokki hjá félaginu. Hún lék með meistaraflokki hér fyrir norðan uns hún fór tvítug suður að loknum menntaskóla.“

Sambýlismaður Unnar er Einar Rafn Eiðsson, einn þriggja leikmanna sem samdi fyrr í dag við KA fyrir næsta keppnistímabil.