Fara í efni
Íþróttir

Ungur Þór og gamall Þór í leikmannahópinn!

Sara Hrönn Viðarsdóttir úr stjórn handknattleiksdeildar Þórs handsalar samninginn við Sævar Þór Stefánsson.

Handknattleiksdeild Þórs hefur samið við tvo leikmenn, báða með millinafnið Þór! Þetta eru Sævar Þór Stefánsson og Heiðar Þór Aðalsteinsson, sem bætast í leikmannahópinn fyrir leikinn við Fjölni í undanúrslitum Grill 66 deildar Íslandsmótsins í kvöld. Greint er frá þessu á heimasíðu Þórs.

Leikur Fjölnis og Þórs fer fram í Dalhúsum í Grafarvogi í dag og hefst kl. 18.00. Það er fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum Grill 66 deildarinnar, en sigurliðið í einvíginu mætir annaðhvort Víkingi eða Kórdrengjum í úrslitaeinvígi um laust sæti í efstu deild Íslandsmótsins, Olísdeildinni, á næsta tímabili.

Annar leikur liðanna verður í Íþróttahöllinni á Akureyri mánudaginn 17. apríl kl. 18. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígið. Ef  kemur til oddaleiks verður hann í Dalhúsum sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl kl. 18.

 
Heiðar Þór Aðalsteinsson í leik með Akureyri - handbolta gegn Val árið 2015. Ljósmynd: Þórir Tryggvason
Á heimasíðu Þórs segir um leikmennina tvo:
 
  • Sævar Þór Stefánsson er efnilegur línumaður fæddur 2006 og hefur verið einn af burðarásum síns árgangs frá því að hann byrjaði að æfa handbolta. Sævar Þór hefur verið í æfingahópum U15 og U16 ára landsliðum Íslands, síðast í mars fyrir ári síðan. Sævar Þór er einn af fjölmörgum ungum og spennandi leikmönnum okkar Þórsara og með fyrstu skrefum deildarinnar í þeirri vegferð að byggja upp þéttan og góðan kjarna af ungum leikmönnum.
  • Heiðar Þór Aðalsteinsson hornamaður ákvað að taka skóna af hillunni og skrifaði í gær undir leikmannasamning við handknattleiksdeildina og mun hjálpa liðinu í gegnum úrslitakeppnina þar sem margir af leikmönnum liðsins eru tæpir og jafnvel meiddir. Heiðar er öllum hnútum kunnugur hjá Þór enda uppalinn í Þorpinu. Hann spilaði síðast með Val en þar á undan Akureyri handboltafélagi.