Tvær fótboltahátíðir fram undan í bænum

Fram undan er fótboltavika og fjölmennt á Akureyri eins og alltaf fyrstu helgi júlímánaðar. Tvö stór knattspyrnumót eru á dagskránni, N1 mótið fyrir drengi hjá KA og Pollamótið fyrir eldri iðkendur hjá Þór. Karlaliðin í fótboltanum eiga líka bæði leiki á næstu dögum, en enn er frí í Bestu deild kvenna enda er loksins komið að stóru stundinni núna í vikunni þegar flautað verður til leiks í Sviss. Þar á Akureyri sinn fulltrúa.
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ - fótbolti
- N1 mót KA hefst með fyrstu leikjum kl. 12. Áfram verður spilað á fimmtudag, föstudag og svo klárað síðdegis á laugardag.
- - -
Fyrsti leikur íslenska kvennalandsliðsins á EM í Sviss er á dagskrá á miðvikudag kl. 16. Allir leikir Íslands og raunar allir leikir mótsins verða í beinni útsendingu á RÚV. Þór/KA á einn fulltrúa í landsliðshópnum. Sandra María Jessen er þar í framlínunni og skoraði í sigri Íslands í æfingaleik gegn Serbíu á föstudag. Vonandi halda Sandra María og liðsfélagar hennar áfram að raða inn mörkunum í næstu leikjum.
- EM kvenna 2025
Arena Thun í Sviss kl. 16:00 - beint á RÚV
Ísland - Finnland
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ - fótbolti
Rétt um það bil sem lokaundirbúningur fyrir Pollamót Þórs fer fram er á dagskrá leikur karlaliðs félagsins í Lengjudeildinni. Þar eru Þórsarar nú í 4. sæti með 17 stig þegar deildarkeppnin er rétt tæplega hálfnuð, tíu umferðum lokið. Fyrir ofan er HK með 18 stig, Njarðvík með 20 og ÍR á toppnum með 22 stig.
- Lengjudeild karla
Boginn kl. 18
Þór - Þróttur
FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ - fótbolti
- Pollamót Þórs hefst með fyrstu leikjum um kl. 9 að morgni föstudags, að venju. Keppni lýkur með úrslitaleikjum síðdegis á laugardag.
- - -
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ - fótbolti
KA hefur gengið afleitlega að skora mörk það sem af er tímabili, hafa skorað 12 mörk í 13 leikjum, fæst allra liða í deildinni. KA seig niður í fallsæti deildarinnar eftir ósigur gegn Val í síðustu umferð og situr í 11. sæti með 12 stig, sama stigafjölda og ÍA sem vann Vestra á Ísafirði. Fyrir ofan eru FH og ÍBV með 14 stig.
Það verður hins vegar forvitnilegt hvort KA gengur betur að skora í næsta leik því mótherjarnir hafa fengið á sig flest mörk allra liða í deildinni, samtals 34 mörk í 11 leikjum. KR-ingar hafa hins vegar einnig skorað mikið, næstflest mörk allra liða í deildinni, 34. Hvað gerist á sunnudag þegar liðin með þessa tölfræði mætast, KA með 1,09 mörk skoruð í leik gegn KR sem hefur fengið á sig og skorað 3,09 mörk í leik?
KR-ingar leika enn á heimavelli Þróttar í Laugardalnum vegna framkvæmda á KR-vellinum.
- Besta deild karla
AVIS-völlurinn í Laugardal (Þróttur) kl. 16
KR - KA
- - -
Annar leikur Íslands á EM verður gegn gestgjöfunum í Sviss, sem mæta Noregi í fyrsta leik.
- EM kvenna 2025
Wankdorf Stadium kl. 19:00 - beint á Rúv
Sviss - Ísland