Fara í efni
Íþróttir

Torfærusól og blíða Greifans – MYNDIR

Ljósmyndir: Þorgeir Baldursson

Ingvar Jóhannesson sigraði í Greifatorfærunni sem fram fór á svæði Bílaklúbbs Akureyrar í gær, laugardag. Skúli Kristjánsson varð annar og Páll Jónsson þriðji.

Þetta var fimmta og síðasta umferð Íslandsmótsins í torfæru.

Geir Evert Grímsson varð fjórði, Andri Már Sveinsson fimmti, Þór Þormar Pálsson í sjötta sæti, Atli Jamil Ásgeirsson í því sjöunda, Finnur Aðalbjörnsson varð áttundi, Guðlaugur Sindri Helgason níundi og í 10. sæti varð Bjarnþór Elíasson.

Þorgeir Baldursson var á svæðinu með myndavélina og býður hér til þessarar veislu.