Þýðingarmiklir leikir í KA-heimilinu í kvöld
Í kvöld ræðst hvort kvennalið KA í blaki leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn þegar stelpurnar mæta Völsungi í þriðja sinn. Leikið verður í KA-heimilinu kl. 20, eftir rimmu KA og Vals í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. Þar er líka mikið í húfi því KA tapaði fyrsta leiknum en þrjá sigra þarf til að komast í úrslit.
Óhætt er að segja að handboltalið KA hafi beðið afhroð í fyrsta leiknum í Valsheimilinu á annan í páskum, þar sem gestgjafarnir unnu með 18 marka mun, 39:21. KA-strákarnir verða heldur betur að spýta í lófana og gera betur í kvöld ætli þeir sér sigur á deildarmeisturunum. Reikna má með troðfullu KA-heimili og frábærri stemningu, sem getur skipt sköpum.
- Olísdeild karla í handbolta
Undanúrslit, leikur 2
KA-heimilið kl. 18
KA - Valur - Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
Áskriftarsjónvarp
Vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígi sem fyrr segir. Hin viðureign undanúrslitanna er á milli Hafnarfjarðarliðanna FH og Hauka, einum leik er lokið þar sem FH-ingar höfðu betur.
Oddaleikur KA og Völsungs
Strax að loknum handboltaleiknum er komið að oddaleik í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki, Unbroken-deildar, þar sem KA tekur á móti Völsungi. KA vann fyrstu viðureignina á Akureyri 3-1, en Völsungur svaraði í sömu mynt, vann 3-1 á Húsavík á annan í páskum. Það mun því sverfa til stáls í kvöld, annað liðið fer áfram í úrslitaeinvígi við HK eða Aftureldingu, en hitt lýkur keppni á þessu tímabili. Viðureign HK og Aftureldingar fer einnig í oddaleik og er hann jafnframt á dagskránni í kvöld.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
Undanúrslit, leikur 3
KA-heimilið kl. 20
KA - Völsungur - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum