Fara í efni
Íþróttir

Þúsundir vina Andrésar andar komnir í bæinn

Ljósmynd: Pedromyndir

Andrésar andar leikarnir, stærsta skíðamót landsins ár hvert, verða haldnir í 47. skipti í Hlíðarfjalli næstu daga. Veislan hefst með skrúðgöngu  í dag, síðasta vetrardag, eins og löng hefð er fyrir. Gengið verður af stað frá Lundarskóla/íþróttasvæði KA kl. 19.00 niður að Íþróttahöll þar sem leikarnir verða settir formlega.

Liðlega 800 keppendur á aldrinum 4-15 ára ár eru skráðir til leiks. Þeim fylgja þjálfarar, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 3000 manns sæki leikana með einum eða öðrum hætti.

Keppt er fimmtudag, föstudag og laugardag auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir. Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar eru í Íþróttahöllinni eru í lok hvers keppnisdags.

„Andrésarleikarnir eru afar mikilvægur viðburður fyrir alla bæjarbúa, fyrirtækin í bænum, barnamenningu bæjarins, ásamt því að vera mikilvægasti einstaki vetraríþróttaviðburður sem fram fer hér á svæðinu á hverju ári,“ segir í tilkynningu frá Skíðafélagi Akureyrar, sem heldur þessa skemmtilegu leika.

Ljósmynd: Pedromyndir

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna. Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um það bil síðustu 10 ár, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Um nokkurra ára skeið hefur 4 og 5 ára bornum boðist að taka þátt í leikunum en lengi vel voru þau yngstu 7 ára. „Þessi börn taka þátt í leikjabraut þar sem allt snýst um að vera með og skemmta sér, en ekki að sigra. Fá allir þátttakendur í leikjabraut verðlaun fyrir þátttökuna og allir fara því brosandi heim. Í ár eru 66 börn á þessum aldri skráð til leiks.“

Ljósmynd: Pedromyndir

„Eftir örlítið rysjóttan skíðavetur um allt land eru aðstæður í Hlíðarfjalli nú með góðu móti og snjómagn í meðallagi. Undirbúningur mótsins hefur staðið yfir síðan s.l. haust og búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár,“ segir í tilkynningunni frá Skíðafélaginu.

„Andrésarleikarnir eru alltaf hápunktur hvers skíðavetrar hjá börnunum og marga sem þyrstir í að koma til Akureyrar og taka þátt í gleðinni.

Nú eru 817 börn skráð frá 15 félögum á Íslandi. Flestir iðkendur koma frá heimamönnum í Skíðafélagi Akureyrar eða 131 keppandi, en Ármann/Fram eru næst fjölmennastir með 97 þátttakendur. Í ár er metfjöldi að taka þátt í skíðagöngu á leikunum og eru 144 börn skráð þar til leiks. Alpagreina þátttakendur eru 606 og 78 taka þátt í snjóbretta greinum.“