Fara í efni
Íþróttir

Þrír krakkar úr Óðni í Framtíðarhópi SSÍ

Þrír krakkar úr sundfélaginu Óðni hafa verið valdir í Framtíðarhóp Sundsambands Íslands. Þetta eru Alicja Julia Kempisty, Ísabella Jóhannsdóttir og Magni Rafn Ragnarsson. Þau „tryggðu sér pláss í Framtíðarhóp SSÍ í byrjun næsta árs, þrátt fyrir erfiðar æfingaaðstöður. Það gerðu þau með því að vera með þeim hröðustu á landinu, í sínum aldursflokki, í tiltekinni 200m sundgrein,“ segir á Facebook síðu Óðins í gærkvöldi.

Þar segir einnig: „Við æfum í útilaug en það gera margir. Við þurfum oft að aflýsa eða breyta æfingum vegna veðurs eins og fjöldi annara sundfélaga. Við þurfum oft að afþýða pallana, til að æfa stungur, en við erum ekki ein um það. Við erum hins vegar svakalega stolt af öllu okkar sundfólki og gleðjust þegar vel gengur.“