Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar urðu að játa sig sigraða í Breiðholti

Jason Gigliotti skoraði 27 stig í kvöld og tók hvorki meira né minna en 19 fráköst. Ljósmynd: Páll Jóhannesson

Þór tapaði fyrir ÍR í kvöld í 1. deild karla í körfubolta, næst efstu deild Íslandsmótsins. Liðin mættust í Reykjavík og ÍR-ingar unnu með 11 stiga mun, 94:83.

  • Skorið eftir leikhlutum: 26:20 – 20:13 – (46:33) – 18:25 – 30:25 – 94:83

Gestirnir byrjuðu betur en Breiðhyltingar komust yfir fyrir lok fyrsta leikhluta og í hálfleik voru þeir 13 stigum eftir. Gestirnir voru hins vegar mun betri í þriðja leikhluta og að honum loknum var munurinn aðeins sex stig ÍR í vil. Þórsarar minnkuðu muninn niður í fimm stig í fjórða og síðasta leikhluta en nær komust þeir ekki.

Harrison Butler og Jason Gigliotti voru bestur í Þórsliðinu í kvöld. Butler skoraði 28 stig og Jason 27, auk þess sem hann tók 18 fráköst. 

Smellið hér til að sjá alla tölfræði úr leiknum.