Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar upp í 1. deild karla í keilu á ný

Þórsarar sem tryggðu sér í dag sæti í 1. deild í keilu næsta vetur. Frá vinstri: Rúnar Ingi Grétarsson, Guðmundur Konráðsson og Ólafur Þór Hjaltalín. Birkir Örn Erlingsson var fjarverandi þegar myndin var tekin.

Lið Þórs tryggði sér sæti í 1. deild karla í keilu næsta vetur með því að sigra A-lið KR í tveimur umspilsleikjum um helgina. Karlalið Þórs er því komið aftur í deild þeirra bestu í keilunni eftir nokkurra ára dvöl í 2. deild.

KR-ingar urðu í níunda sæti 1. deildar í vetur en Þórsarar næst efstir í 2. deild og liðin mættust því heima og að heiman, til að skera úr um hvort yrði í efstu deild næsta vetur. Liðin mættust fyrst í Egilshöll í Reykjavík í gær, þar sem Þórsarar höfðu betur, og aftur fögnuðu norðanmenn sigri í dag, þá á heimavelli – á Akranesi!

Óbilandi áhugi

Eftir að Keiluhöllinni á Akureyri var lokað hafa Þórsarar nefnilega æft og spilað á Akranesi. „Þór hefur tilkynnt bæði lið sín áfram næsta tímabil sem er mikið ánægjuefni en það er ekki hægt að taka því sjálfgefnu að aðilar leggi á sig að ferðast frá Akureyri suður á Skagann til að stunda íþrótt. Þessir einstaklingar innan keilunnar hjá Þór eiga mikið hrós skilið fyrir óbilandi áhuga á íþróttinni okkar og fórnfýsi,“ segir á heimasíðu Keilusambands Íslands í dag, og ekkert ofsagt þar.

„Það væri óskandi ef aðalstjórn Þórs og bæjaryfirvöld á Akureyri legðu saman hönd á plóg við að koma upp aðstöðu fyrir keiluna í heimabæ fyrir sitt fólk. Líta má til þess sem gert hefur verið á Akranesi þar sem bæjaryfirvöld og ÍA tóku höndum saman með þeim sem starfa innan keilunnar með mjög góðum árangri. Nú sem fyrr skorar keilusamfélagið á Íslandi á aðila fyrir norðan að standa með sínu fólki því í þessu vinna allir,“ segir á heimasíðu Keilusambandsins.

Smellið hér til að sjá tölfræði úr leikjum helgarinnar.