Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar töpuðu fyrsta leik gegn Stjörnunni

Maddie Sutton var sem oftast fyrr atkvæðamest í Þórsliðinu. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þór tapaði fyrsta leik úrslitaeinvígis 1. deildar kvenna í körfubolta fyrir Stjörnunni, 94:80, í Garðabæ í gærkvöldi. Annar leikur liðanna verður á Akureyri á laugardag kl. 16.

  • Skorið eftir leikhlutum: 27:14 – 17:24 (44:38) – 24:20 – 26:22 – 94:80

Leikurinn var jafn til að byrja með, Þórsarar höfðu eins stigs forystu eftir fjórar mínútur, en þá kom 12 stiga áhlaup frá Stjörnunni og staðan breyttist úr 7:8 í 19:8 og svo 27:14 þegar fyrsta leikhluta lauk. Stjarnan jók muninn í 15 stig í öðrum leikhluta, en Þórsarar söxuðu svo jafnt og þétt á forskotið, munurinn kominn niður í sex stig fyrir lok fyrri hálfleiks, 44:38.

Upphaf seinni hálfleiks gaf góð fyrirheit og forskot Stjörnunnar aðeins tvö stig snemma í þriðja leikhluta, 48:46, en þá komu níu stig í röð og Stjarnan aftur komin með 11 stiga forystu. Þetta forskot náðu Þórsarar ekki að vinna upp og þegar leið á leikinn náði Stjarnan mest 19 stiga forskoti. 

Maddie Sutton var sem oftast fyrr atkvæðamest í Þórsliðinu, með 38 framlagsstig. Hún skoraði 23 stig, tók 20 fráköst og átti sex stoðsendingar. Eva Wium skoraði 18 stig, Karen Lind 12, Hrefna 10, Tuba 6 (10 fráköst), Emma Karólína 6 og Heiða Hlín 5.

Ítarleg tölfraæði leiks

Þórsliðið hafði mikla yfirburði í fjölda frákasta, 52 á móti 33, en á móti kemur að tapaðir boltar Þórsara voru 28 á móti 11 hjá Stjörnunni. Skotnýting liðanna var mjög svipuð í prósentum talið, 44% í heildina. Þó skotnýtingin væri svipuð liggur stærsti munurinn í stigafjöldanum í þriggja stiga skotunum. Þar skoraði Stjarnan úr 16 af 34 skotum, en Þórsarar skoruðu úr níu af 22. Af 94 stigum Stjörnunnar komu 54 fyrir utan þriggja stiga línuna.

Smellið hér til að sjá nánari umfjöllun á heimasíðu Þórs.