Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar töpuðu fyrir Fram í fyrstu umferð

Línumaðurinn Þórður Tandri Ásgeirsson var frábær í sókninni í gær, gerði átta mörk úr jafn mörgum skotum og var einnig öflugur í vörninni. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar töpuðu fyrir Fram í Reykjavík í gær, 38:34, í fyrstu umferð efstu deildar Íslandsmótsins í handbolta – Olís deildinni. Þórsliðið sýndi skemmtileg tilþrif á köflum, töluverðar breytingar hafa orðið á liðinu frá síðustu leiktíð og líklega á eftir að slípa það betur saman.

Birkelund þjálfari Þórs sagði í viðtali við akureyri.net fyrir leik að breiddin í leikmannahópnum væri meiri og þjálfarinn sýndi í verki að sú sé raunin því 10 útileikmenn komu við sögu auk markmannanna tveggja. Það var eins og hann vildi gefa sem flestum tækifæri í „alvöru“ leik og sjá hvernig þeir spreyttu sig.

Arnór Þorri Þorsteinsson og Halldór Kristinn Harðarson lögðu skóna á hilluna í sumar, svo og Kári Kristján Kristjánsson sem lék með Þór hluta síðasta vetrar. Í stað þeirra eru komnir fjórir Danir og Jóhann Geir Sævarsson sneri aftur frá KA. Hinir þrautreyndu Brynjar Hólm Grétarsson, Hafþór Már Vignisson, Oddur Gretarsson og Þórður Tandri Ágústsson eru allir áfram í lykilhlutverkum. Þeir spiluðu ekki jafn mikið og alla jafna í fyrra, nema Tandri sem var frábær á línunni; þegar hann fær boltann þarf yfirleitt ekki að sökum að spyrja og hann reyndist markvörðum Framara einmitt óþægur ljár í þúfu í gær; gerði átta mörk úr jafn mörgum skotum.

Brynjar Hólm gerði tvö fyrstu mörkin og Þórsarar höfðu frumkvæðið framan af, fyrri hálfleikurinn var síðan lengst af í járnum, klaufaskapur eða einbeitingarleysi gestanna gerði það að verkum að Framarar voru komnir fjórum mörkum undir lok hálfleiksins en Hafþór Vignisson lagaði stöðuna á lokasekúndunni.

Þórsliðið var í humátt á eftir Fram allan seinni hálfleikinn en náði aldrei að jafna leikinn. Minnst munaði einu marki en Framarar höfðu mest fimm marka forystu. Nokkrum sinnum virtist sem gestunum ætlaði að tækist að ná heimamönnum en mistökin voru of mörg og því fór sem fer. Liðið sýndi þó skemmtilega takta á köflum eins og áður sagði og gaman verður að sjá það í næstu leikjum þegar búið verður að smyrja vélina betur. Einn Dananna vakti sérsaka athygli, leikstjórnandinn Bertram Simonsen; hann hefur mjög gott auga fyrir spili og átti fjórar stoðsendingar í leiknum auk þess að gera fjögur mörk. Þórðar Tandra er áður getið, Hafþór Vignisson gerði sjö mörk og átti fimm stoðsendingar og Brynjar Hólm gerði fjögur mörk og þrjú mörk voru skoruð eftir sendingar hans.

Mörk KA: Þórður Tandri Ágústson 8, Hafþór Már Vignisson 7, Bertram Simonsen 6, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Hákon Ingi Halldórsson 3 (þar af 2 úr víti), Mikkel Bak Scheumann Jensen 2, Jóhann Geir Sævarsson 2 (annað var úr víti), Lárus Breki Gærdbo Ágústsson 2.

Varin skot: Nikola Radovanovic 12 (29%), Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk Fram: Haukur Ingi Hauksson 7, Max Emil Stenlund 6, Ívar Logi Styrmisson 6 (þar af 3 úr víti), Erlendur Guðmundsson 4, Alex Unnar Hallgrímsson 4, Dánjal Ragnarsson 3, Dagur Fannar Möller 2, Ólafur Jóhann Magnússon 2, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 1, Viktor Sigurðsson 1, Steinar Már Einarsson Clausen 1, Arnar Máni Daðason 1. 

Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 7 (33%), Arnór Máni Daðason 5 (20%)