Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar semja við serbneskan miðvörð

Petar Planic, til vinstri, í leik með PSIS Semarang í Indónesíu árið 2018.

Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við serbneskan miðvörð, Petar Planic, um að leika með liðinu í sumar.

Planic er nýorðinn 32 ára og lék frá því um tvítugt með liðum í efstu og næst efstu deild í Serbíu; 66 leiki í efstu deild og heldur fleiri í næst efstu. Frá 2017 hefur hann leikið í Líbanon, Moldóvu, Indónesíu, Bosníu, Bangladesh og nú síðasta á Maldíveyjum.

„Félagið væntir mikils af Petar og þeirri reynslu sem hann kemur til með að gefa hinu unga liði Þórs í Lengjudeildinni í sumar,“ segir á heimasíðu Þórs.