Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar fá EKKI topplið Keflavíkur í heimsókn

Lore Devos hefur leikið mjög vel með Þórsliðinu í vetur. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

ATHUGIÐ - Tilkynnt var á vef Þórs síðdegis að leiknum hafi verið frestað þar sem ekki hafi verið flogið innanlands í dag.
_ _ _

Kvennalið Þórs í körfubolta fær lið Keflavíkur í heimsókn í kvöld í Subway-deildinni, efstu deild Íslandsmótsins. Gestirnir tróna á toppi deildarinnar, hafa unnið alla átta leikina í deildinni til þessa. Þórsarar eru í sjötta sæti, hafa unnið fjóra leiki en tapað jafn mörgum.

Leikurinn Íþróttahöllinni á Akureyri hefst á óvenjulegum tíma - klukkan 20.15.

Þór tapaði fyrir Grindavík í síðasta leik, sem fram fór í Smáranum í Kópavogi, en Keflvíkingar unnu Íslandsmeistara Vals með 20 stiga mun. Stelpurnar okkar, nýliðar í deildinni, hafa sýnt í vetur að mikið býr í þeim og fróðlegt verður að sjá rimmu þeirra og toppliðsins í kvöld.