Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar draga lið sitt úr efstu deild

Kvennalið Þórs í körfuknattleik í vetur. Mynd: Páll Jóhannesson

Þórsarar hafa ákveðið að draga kvennalið félagsins í körfuknattleik úr keppni í efstu deild Íslandsmótsins. Liðið verður þess í stað skráð til keppni í 1. deild, þeirri næst efstu.

Liðið hefur verið ein af skrautfjöðrum bæjarins í hópíþróttum síðustu misseri en fyrr í dag var tilkynnt að tveir bestu leikmennirnir, Eva Wium Elíasdóttir og Maddie Sutton væri gengnar til liðs við Stjörnuna í Garðabæ og við blasir að erlendir atvinnumenn verði ekki á mála hjá Þór næsta vetur.

Spánverjinn Ricardo González Dávila var á dögunum ráðinn þjálfari kvennaliðs Þórs í stað Daníels Andra Halldórssonar sem söðlaði um og er orðinn þjálfara kvennaliðs KR.

Tilkynning Þórsara er svohljóðandi:

Kæru Þórsarar og körfuboltafjölskylda Íslands. Okkur í stjórn KKD Þórs þykir erfitt að tilkynna ykkur um að Þór Akureyri hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í Bónusdeild (úrvalsdeild) kvenna og skrá liðið þess í stað í 1. deild á komandi vetri.

Nýverið var tilkynnt um ráðningu á tveimur gífurlega færum þjálfurum fyrir kvennaliðið með það í huga að byggja upp kvennalið og yngri flokka okkar til framtíðar. Með akkúrat þessi sjónarmið, uppbyggingu og framtíðarhugsun teljum við hag kvennaliðs okkar betur borgið í 1. deild þar sem betri tækifæri gefast til þess að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri. Við viljum nota tækifærið og skora á ungar stelpur sem vilja fá mínútur á meistaraflokks getustigi að koma norður, þroskast og eflast undir stjórn færra þjálfara í félagi með góða umgjörð og skýra framtíðar hugsun.

Þór, í hvaða íþrótt sem um ræðir, er og verður alltaf félag sem byggir starf sitt á miklum og einstökum félagsauði innan vallar sem utan. Okkur í stjórn KKD finnst ekki forsvaranlegt að þurfa a.m.k. næstu 3-4 árin að halda úti liði sem að mestu yrði byggt á því að fullnýta útlendingakvótann sem leyfður er hverju sinni. Þó vissulega þurfi öðru hvoru að gera undantekningar á stefnunni, telur stjórnin að til langs tíma sé slík stefna sé ekki í anda félagsins. Tekið skal þó skýrt fram að ekki er hér um ádeilu á stefnu annara félaga að ræða. Hver og einn verður að sníða sér stakk eftir vexti og marka sér sína stefnu.

Í körfubolta á Akureyri felast gífurleg tækifæri og mikil efni til bætingar. Lykill þess að svo megi verða er skynsamlegur rekstur og skýr framtíðar hugsun. Er það staðföst trú stjórnar KKD Þórs að með því að beina auknum fjármunum til öflugra þjálfararáðninga fyrir yngri flokka og meistaraflokka sé verið að byggja upp sterkari grunn sem muni vonandi verða til þess að Þór muni innan fárra ára orðið stórt og gildandi félag í íslenskum körfubolta.