Fara í efni
Íþróttir

Þór/KA og Tindastóll mætast í sögulegum leik

Hulda Björg Hannesdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir sækja að marki Stjörnunnar í Boganum í síðustu umferð. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Þór/KA og Tindastóll mætast í kvöld fyrsta sinni í efstu deild Íslandmsótsins í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Sauðárkróki og hefst klukkan 20.00.

Tindastóll er nýliði í Pepsi Max deildinni og leikur í sumar í fyrsta skipti í efstu deild. Sauðkrækingar eru í fimmta sæti deildarinnar með fjögur stig að loknum þremur leikjum en Þór/KA er hins vegar í níunda sæti, því næst neðsta, með þrjú stig en hefur þó lokið fjórum leikjum.

Leikir Þórs/KA til þessa:

  • ÍBV - Þór/KA 1:2
  • Þór/KA – Selfoss 0:2
  • Breiðablik – Þór/KA 3:1
  • Þór/KA – Stjarnan 0:1

Leikir Tindastóls til þessa:

  • Tindastóll – Þróttur 1:1
  • Tindastóll – ÍBV 2:1
  • Breiðablik – Tindastóll 0:1

Leik Fylkis og Tindastóls í 2. umferð deildarinnar var frestað vegna Covid.

Leikurinn í kvöld verður sýndur beint á stod2.is