Fara í efni
Íþróttir

Sveinn Margeir semur við KA til ársloka 2025

Sveinn Margeir Hauksson þrumar að marki Breiðabliks á Greifavelli KA í fyrrasumar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnumaðurinn Sveinn Margeir Hauksson skrifaði í dag undir nýjan samning við KA og er nú samningsbundinn félaginu út árið 2025. Frá þessu var greint á vef KA í kvöld.

Sveinn er 21 árs „en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í stóru hlutverki í meistaraflokksliði KA frá komu sinni í félagið árið 2019. Á nýliðnu tímabili steig hann enn stærra skref og var í algjöru lykilhlutverki er KA endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og fór í undanúrslit Mjólkurbikarsins,“ segir á vef KA í kvöld.

Sveinn er Dalvíkingur og steig fyrstu skrefin í meistaraflokki með Dalvík/Reyni. Hann á nú að baki 60 leiki í efstu deild og bikarkeppni fyrir KA og hefur gert fimm mörk; Sveinn tók þátt í 26 leikjum á síðustu leiktíð og gerði fjögur mörk. „Í kjölfarið af frábærri frammistöðu í sumar var Sveinn valinn í U21 árs landslið Íslands sem mætti Tékklandi í umspili fyrir EM 2023,“ segir á vef KA.