Fara í efni
Íþróttir

Svavar Ingi semur við FH til þriggja ára

Svavar Ingi Sigmundsson og Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH.

Svavar Ingi Sigmundsson, hinn ungi og efnilegur markmaður handboltaliðs KA, hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild FH og mun ganga til liðs við félagið í sumar. Félagið tilkynnti þetta í morgun.

Svavar Ingi, sem er tvítugur, hefur leikið með öllum yngri landsliðunum og er í dag í U-21 árs landsliðinu.

„Svavar Ingi er einn efnilegasti markmaður landsins og erum við FH-ingar virkilega ánægðir með að fá hann í Kaplakrika,“ er haft eftir Ásgeiri Jónssyni, formanni handknattleiksdeildar FH, í tilkynningu.

„Fyrstu kynni okkar af Svavari Inga eru að hér er á ferð alvöru drengur sem er með mikinn metnað og hann ætlar sér langt. Við FH-ingar munum hjálpa honum að ná sínum markmiðum,“ segir Ásgeir.