Sunna Björgvinsdóttir snýr aftur í raðir SA
Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar tilkynnti í dag um heimkomu landsliðsfyrirliðans Sunnu Björgvinsdóttur fyrir næsta tímabil. Þetta eru stórar fréttir fyrir félagið því Sunna er ein af albestu hokkíkonum landsins, hefur verið valin íshokkíkona ársins tvö síðustu ár og hefur undanfarin ár spilað sem atvinnukona í íþróttinni í Svíþjóð. Þar hefur hún skorað 76 mörk og átt 100 stoðsendingar í 146 leikjum í næstefstu deild.
Sunna mun án efa styrkja lið SA á komandi tímabili, en liðið missti af Íslandsmeistaratitlinum eftir að hafa unnið deildarmeistaratitilinn með yfirburðum nokkrum vikum áður.

Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar, og Sunna Björgvinsdóttir landsliðsfyrirliði og verðandi leikmaður og þjálfari hjá SA, takast í hendur við undirskrift samningsins í dag. Mynd: sasport.is
Öflugur leikmaður, leiðtogi, fyrirmynd og þjálfari
Í tilkynningu íshokkídeildarinnar er tekið fram að ekki aðeins sé félagið að fá heim einn besta leikmann landsins heldur einnig sterkan leiðtoga og mikilvæga fyrirmynd.
„Við erum auðvitað hæstánægð að vera búin að fá Sunnu heim. Hún er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir kvennaliðið okkar, leikmaður með háan standard, mikla reynslu og auðvitað í fremstu röð íslenskra leikmanna. Hún á eftir að setja svip sinn á kvennaliðið og hafa mikil áhrif á leikinn og leikmennina,“ segir Elísabet Ásgrímsdóttir, formaður íshokkídeildar SA í frétt á vef félagsins.
Þar segir einnig:
Sunnu þarf vart að kynna fyrir íslensku íshokkífólki en hin 25 ára gamla Sunna er fyrirliði íslenska landsliðsins og hefur verið valin íshokkíleikmaður ársins á Íslandi síðustu tvö ár. Sunna hefur um árabil verið meðal sterkustu leikmanna NDHL-deildarinnar í Svíþjóð þar sem hún hefur leikið fimm tímabil með Södertälje SK, auk þess sem hún hefur leikið tímabil með bæði Haninge og Troja/Ljungby. Þá hefur hún farið á láni og spilað með Leksand og HV71 í SDHL-deildinni, sem er sterkasta kvennadeild Evrópu. Sunna hefur skorað 176 stig, 76 mörk og 100 stoðsendingar, í 146 leikjum í næstefstu deild Svíþjóðar og á einnig 13 leiki að baki í SDHL-deildinni.
Sunna lék síðast heilt tímabil með SA tímabilið 2018–2019, fyrir utan þrjá leiki sem hún spilaði með liðinu í úrslitakeppninni á covid-tímabilinu árið 2021. Sunna var aðeins 18 ára gömul þegar hún fór erlendis en hafði þá spilað 88 leiki í meistarflokki og skorað í þeim 192 stig. Endurkoma hennar er því mikið gleðiefni fyrir félagið og stuðningsfólk SA.
Auk þess að styrkja lið SA í samkeppni við Reykjavíkurliðin mun Sunna taka að sér þjálfun hjá félaginu og verður aðalþjálfari U16 liðs SA á komandi tímabili.
„Við erum jafnframt ákaflega lánsöm að fá svo öfluga fyrirmynd og reynslumikinn leikmann sem þjálfara hjá U16. Þar eru margar stelpur í hópnum og því ekki síður mikilvægt að fá kvenþjálfara þar og almennt inn í þjálfarateymið okkar,“ segir Elísabet á vef SA, en þar er einnig vitnað í Sunnu: „Ég er mjög glöð að vera komin heim og spennt fyrir þessum nýju verkefnum, ásamt því að fá að miðla reynslu minni inn í liðið og þjálfunina,“ segir Sunna Björgvinsdóttir um heimkomu sína í raðir Skautafélags Akureyrar.