Fara í efni
Íþróttir

Stelpurnar náðu í þrjú afar dýrmæt stig

Markaskorarar! Jakobína Hjörvarsdóttir, til vinstri, og Margrét Árnadóttir. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.

Stelpurnar í Þór/​KA náðu sér í þrjú gríðarlega mikilvæg stig í kvöld með 2:1 sigri á Keflavík á útivelli í Pepsi Max deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins.

Jakobína Hjörvarsdóttir gerði fyrra mark Þórs/KA með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 21. mínútu og Margrét Árnadóttir það seinna á 66. mínútu.

Amelía Rún Fjeldsted minnkaði muninn þegar vallarklukkan sýndi 89. mínútu en þó voru tæpar 10 mínútur eftir; uppbótartíminn var óvenju langur vegna skiptinga og meiðsla.

Sigur Stelpnanna okkar var sanngjarn og þær fögnuðu að vonum innilega. Fyrir leikinn var Keflavík einu stigi fyrir ofan Þór/KA en með sigrinum þokast Akureyrarliðið upp í miðja deild.

Smellið hér til að sjá leikskýrsluna.