Sonja Lí keppir á Ólympíuleikunum
Sonja Lí Kristinsdóttir frá Akureyri mun keppa í svigi og stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Tilkynnt var í morgun að hún hefði bæst í keppendahópinn eftir að Alþjóðaskíðasambandið bauð Íslandi eitt sæti til viðbótar í gær.
Gaman er að geta þess að faðir Sonju, Kristinn Magnússon, keppti á Vetrarólympíuleikunum árið 2002 í Salt Lake City í Bandaríkjunum. Feðginin bætast þar með í tiltölulega fámennan hóp Íslendinga því ekki eru mörg dæmi um það að börn feti í fótspor foreldra sinna og keppi á Ólympíuleikum.
Sonja Lí keppir í stórsvigi næsta sunnudag, 15. febrúar, og svigi 18. febrúar. Elín Elmarsdóttir Van Pelt keppir í sömu greinum fyrir hönd Íslands.
Eftirfarandi tilkynning birtist á vef ÍSÍ í morgun:
Alþjóðaskíðasambandið (FIS) sendi póst á Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í gær, þar sem Íslandi var boðið eitt sæti í viðbót í alpagreinum kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó Cortína á Ítalíu. Um er að ræða endurúthlutun sæta.
Stjórn Skíðasambands Íslands (SKÍ) samþykkti ákvörðun alpagreinanefndar SKÍ um að þiggja sætið. Samkvæmt fyrri ákvörðun SKÍ liggur fyrir að varamaður er Sonja Lí Kristinsdóttir og hefur framkvæmdastjórn ÍSÍ staðfest val Skíðasambandsins. Patrick Basto þjálfari bætist einnig við þjálfarateymi Íslands í alpagreinum kvenna.
Sonja Lí mun því bætast við alpagreinahópinn frá Íslandi í Cortína á næstu dögum.
Dreymdi un að keppa á ÓL
Sonja Lí sagði í viðtali við akureyri.net á síðasta ári að hana dreymdi um að keppa á Ólympíuleikunum og nú er sá draumar að rætast.
Hún var þá á síðasta ári í skíðamenntaskólanum í Geilo í Noregs. Í viðtalinu, sem birtist 9. apríl í fyrra, sagði meðal annars:
„Pabbi minn var líka á skíðum og ég ólst upp við það að fara mikið á skíði,“ segir Sonja Lí. „Hann hefur líka verið skíðaþjálfari og þjálfar t.d. í dag á Akureyri. Hann fór á ólympíuleika, sem er eitthvað sem mig dreymir um líka. Það hjálpaði alveg varðandi þessa ákvörðun, að ég færi hérna út í skólann 16 ára, að hann hafði verið á sama stað og þekkti til. Hann sagði reyndar að hann hefði ekkert leyft mér að fara ef þau hefðu haft einhverjar áhyggjur af mér, en ég hef alltaf verið frekar sjálfstæð og þetta hefur gengið vel.“
- Viðtalið við Sonju:
Fæ einingar fyrir að æfa og keppa á skíðum
- Frétt RÚV í morgun: