Fara í efni
Íþróttir

Sonja Lí hlaut silfur í svigi á Íslandsmótinu

Þórdís Helga Grétarsdóttir úr Víkingi á efsta palli - Íslandsmeistari í svigi. Sonja Lil Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar varð í öðru sæti og Eyrún Erla Gestsdóttir úr Víkingi þriðja. Mynd: Barði Westin

Þórdís Helga Grétarsdóttir úr Víkingi og Gauti Guðmundsson úr KR urðu Íslandsmeistarar í svigi í Hlíðarfjalli í gær á fyrsta keppnisdegi Skíðamóts Íslands í alpagreinum. Ólympíufarinn Sonja Lí Kristinsdóttir frá Akureyri varð í öðru sæti og nældi þar með í silfurverðlaunin.

Aðstæður í Hlíðarfjalli voru fjölbreyttar og krefjandi, eins og það er orðað á vef Skíðasambandsins; á vef Skíðafélags Akureyrar segir að aðstæður hafi verið góðar þrátt fyrir allt, en reyndar hafi lognið „verið að flýta sér“!

Í kvennaflokki var Sara Mjöll Jóhannsdóttir úr Ármanni með besta tímann eftir fyrri ferð, Elín Elmarsdóttir Van Pelt úr Víkingi var önnur og Þórdís Helga Grétarsdóttir, einnig úr Víkingi, þriðja. Í seinni ferð sýndi Þórdís Helga frábæra frammistöðu, náði besta tímanum og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í svigi. Í öðru sæti varð Sonja Lil Kristinsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar og í þriðja sæti Eyrún Erla Gestsdóttir úr Víkingi. Sara Mjöll og Elín náðu ekki að ljúka seinni ferð.

Í karlaflokki var Matthías Kristinsson, Skíðafélagi Ólfasfjarðar, með besta tímann eftir fyrri ferð, Gauti Guðmundsson úr KR annar og Jón Erik Sigurðsson úr Fram þriðji. Gauti átti hins vegar frábæra seinni ferð, náði besta tímanum og varð Íslandsmeistari. Matthías Kristinsson varð annar og Jón Erik Sigurðsson þriðji.

Í U18 kvennaflokki sigraði Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir úr ÚÍA. Viktoría Björk Harðardóttir úr Breiðabliki varð í öðru sæti og Katrín María Jónsdóttir úr ÚÍA í því þriðja.

Í U18 karlaflokki stóð Óskar Valdimar Sveinsson úr Dalvík uppi sem sigurvegari. Kári Freyr Orrason úr Ármanni varð annar og Hrafnkell Gauti Brjánsson, einnig úr Ármanni, þriðji.

Sjá úrslit hér

Smellið hér til að sjá glæsilegar myndir Barða Westin frá svigkeppninni í gær.