Fara í efni
Íþróttir

Slippmótið: Helga, Kristín og Vignir unnu

Þrjú fyrstu í einstaklingskeppinni. Frá vinstri: Baldvin Steinn Torfason, Helga Helgadóttir sem sigraði, og Anton Orri Hjaltalín. Ljósmynd: Jón Óskar Ísleifsson.

Árlega Slippmót íþróttafélagsins Eikar í boccia var haldið í gær í íþróttahúsinu á Hrafnagili.

Úrslit í einstaklingskeppninni urðu þau að Helga Helgadóttir sigraði, í öðru sæti varð Anton Orri Hjaltalín og Baldvin Steinn Torfason varð þriðji.

Úrslit í sveitakeppni urðu sem hér segir

  • 1. sæti – Eik B, Kristín Ólafsdóttir Smith og Vignir Hauksson.
  • 2. sæti – Eik G, Jón Óskar Ísleifsson, Baldvin Steinn Torfason og Anton Orri Hjaltalin.
  • 3. sæti – Eik C, Arndís Atladóttir, Helga Helgadóttir og Héðinn Jónsson.

Kristín Ólafsdóttir Smith og Vignir Hauksson sem sigruðu í sveitakeppninni. Ljósmynd: Jón Óskar Ísleifsson.