Skíðaskotfimi festir sig í sessi – MYNDIR
Yfir 30 þátttakendur voru með á fyrsta bikarmóti ársins í skíðaskotfimi sem haldið var í Hlíðarfjalli helgina 7.-8. febrúar. Þá var í fyrsta sinn á Íslandi skotið standandi og liggjandi með laser rifflum.
Mótstjórinn, Veronika Guseva, sem er formaður skíðaskotfiminefndar SKÍ, segir mótið hafa gengið afar vel. Ánægja keppenda var mikil og framkvæmd mótsins nánast hnökralaus, að hennar sögn.
Ragnar Kristinn Bragason, sem er gamalreyndur keppandi í skíðagöngu og sigurvegari í flokki 36 ára og eldri, lýsti mikilli ánægju með mótið og að skíðaskofimi væri sannarlega að festast í sessi hér á landi. „Ég hefði gjarnan viljað skíðaskotfimi hefði verið kominn til landsins þegar maður var uppá sitt besta. Þetta er frábær og skemmtileg íþrótt“, sagði Ragnar.
Keppt var í fjórum aldursflokkum beggja kynja, 11-13 ára, 14-15 ára, 16-35 ára og 36 ára og eldri. Vegalengdir voru mismunandi eftir aldursflokkum frá 3 x 800 metrum í yngstu flokkunum í 5 x 1 km í eldri flokkunum.
- Sigurvegarar í flokki 11-13 ára drengja og stúlkna voru systkini úr SFS, Sigurður Halldór Logi Óskarsson og Ísafold Lilja Óskarsdóttir.
- Í 14-15 ára strákaflokki bar Jökull Ingimundur Hlynsson úr SFS sigur úr býtum og Viktoría Rós Guseva úr SKA í stúlknaflokki.
- Þórey Dögg Ragnarsdóttir úr SFS vann keppni fyrri dagsins í 16-35 ára flokki kvenna en Vala Kristín Georgsdóttir úr Ulli varð hlutskörpust seinni daginn.
- Matas Zalneravicius úr SFS sigraði báða dagana í flokki 16-35 ára flokki karla.
- Í flokki 36 ára og eldri bar Ragnar Kristinn Bragason SFS sigur úr bítum báða dagana.
Smellið hér til að sjá öll úrslit á mótinu.