Fara í efni
Íþróttir

SKA á þrjá fulltrúa af fimm í landsliðinu

Landsliðshópur Íslands í snjóbrettum og skíðafimi. Í efri röð eru Vildís Edwinsdóttir og Anna Kamilla Hlynsdóttir og í neðri röðinni Jónar Sebastian Giljan Grímsson, Alís Helga Daðadóttir og Jökull Bergmann Kristjánsson. Mynd: ski.is.

Skíðafélag Akureyrar (SKA) á þrjá fulltrúa af fimm í landsliði Íslands í snjóbrettum og skíðafimi fyrir keppnistímabilið 2026-2027 en Skíðasamband Íslands (SKÍ) tilkynnti landsliðsvalið nýlega.

Í A-landsliði snjóbretta eru þær Anna Kamilla Hlynsdóttir og Vildís Edwinsdóttir, báðar úr Brettafélagi Hafnarfjarðar. Í B-landslið í skíðafimi er Jónar Sebastian Giljan Grímsson valinn og í B-landsliði snjóbretta eru þau Jökull Bergmann Kristjánsson og Alís Helga Daðadóttir. Þau eru öll úr Skíðafélagi Akureyrar en þau Jökull og Alís Helga eru nýliðar í landsliðinu. Þess má geta að Jónar Sebastian og Jökull kepptu fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti unglinga í skíðafimi og snjóbrettum í Kanada nýlega. Jónar Sebastian varð þar fyrsti Íslendingurinn til að keppa í skíðafimi á heimsmeistaramóti.

Í frétt á vefsíðu SKÍ kemur fram að fyrsta sameiginlega æfing landsliðshópsins fari fram í ágúst næstkomandi en undirbúningur fyrir tímabilið sé nú þegar hafinn.

„Framundan er skemmtilegt og krefjandi tímabil og verður gaman að fylgjast með þessum öfluga hópi keppenda takast á við komandi verkefni,“ segir í frétt SKÍ og þar er keppendum óskað til hamingju með landsliðsvalið.