Sjúkraflugið, Reykjavíkurflugvöllur hreint þjóðaröryggismál
Reykjavíkurflugvöllur er ekki aðeins samgöngumannvirki. Hann er eitt helsta öryggismannvirki landsins. Hann er hluti af heilbrigðiskerfinu, hluti af almannavörnum, mikilvægur varaflugvöllur eins og sýndi sig 26. febrúar sl. þegar Keflavíkurflugvöllur lokaðist og fjöldi farþegaþotna í millilandaflugi lentu á varaflugvöllum landsins og þar með talið á Reykjavíkurflugvelli. Þá er flugvöllurinn lífæð landsbyggðarinnar. Þegar við ræðum framtíð flugvallarins verðum við að horfa á þetta stóra samhengi, ekki aðeins skipulagsmál innan borgarmarka eins og meirihlutinn í Reykjavík hefur lagt áherslu á síðastliðin ár.
Húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2025-2034
Hér má geta þess að í húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2025-2034 sem samþykkt var 15. maí 2025 í borgarstjórn er ekki gert ráð fyrir Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni og greinilega litið á þetta mál sem einkamál meirihlutans í Reykjavík. Meirihlutinn hefur búið í ákveðnum hliðarveruleika í sinni nálgun gagnvart flugvellinum og gefur ekkert fyrir höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur.
Landspítalinn
Bráðaheilbrigðisþjónusta á Íslandi byggir á því að hægt sé að koma bráðveikum og slösuðum sjúklingum hratt og örugglega á Landspítalann þar sem öflugasta og sérhæfðasta sjúkrahúsþjónustan er til staðar í landinu og í mörgum tilfellum eina sjúkrahúsið sem veitir þá lífsbjargandi meðferð sem viðkomandi sjúklingur gæti þurft á að halda. Fyrir fólk á Norðurlandi, Austurlandi, Vestfjörðum, í Vestmannaeyjum og víðar getur hver mínúta skipt máli og er sjúkraflugið því oft eini rauhæfi valkosturinn fyrir þessa einstaklinga. Þá skiptir það gríðarlegu miklu máli að hægt sé að lenda nálægt Landspítalanum og þeirri sérfræðiþjónustu sem þar er til staðar. Reykjavíkurflugvöllur gegnir þar lykilhlutverki, er lykilinnviður.
Sjúkraflugið 2025
Tölurnar sýna líka hversu mikilvæg þessi þjónusta er orðin. Í fyrra voru flogin 870 sjúkraflug með 923 sjúklinga. Það er gríðarleg aukning frá árinu 2002, þegar flugin voru um 200, eftir að sjúkraflugið var tekið upp í þeirri mynd sem við þekkjum það í dag. Þessi þróun sýnir að þörfin er raunveruleg og vaxandi.

Myndræn framsetning
Í fyrri skrifum um sjúkraflugið á Íslandi hef ég sett fjölda fluga upp með myndrænum hætti. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig sjúkrafluginn innanlands í fyrra skiptast niður á flugvelli landsins. Það auðveldar fólki að skynja fjölda þeirra.
Það er því ábyrgðarhluti að tala um að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar án þess að tryggja að jafn góður eða betri kostur taki við og sé til staðar. Slík ákvörðun snýst ekki aðeins um flugvélar og flugbrautir. Hún snýst um jafnan rétt landsmanna til heilbrigðisþjónustu þegar mest á reynir.
Mikilvægur öryggisinnviður
Ég tel að við eigum að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll sem mikilvægan hlekk í sjúkraflugi landsins, mikilvægan öryggisinnvið. Það er ekki sérhagsmunamál heldur mál sem snýr að almannahagsmunum.
Hreint þjóðaröryggismál.
Ábyrgð borgarfulltrúa
Nú fara sveitarstjórnarkosningar í hönd og því er mikilvægt fyrir kjósendur í Reykjavík að vita hvaða flokkar ætla að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll og tryggja þar með aðgengi sinna ættingja og vina á landsbyggðinni að lífsbjargandi heilbrigðisþjónustu.
Njáll Trausti Friðbertsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.