Sjö frá 600 MMA tóku þátt í RVK Open 4
Nýr bardagaíþróttaklúbbur á Akureyri, 600 MMA, tók þátt í RVK Open 4 sem fram fór í Reykjavík nýlega, þar sem keppt var í brasilísku jiu jitsu. Alls tóku um 60 keppendur þátt í mótinu og sendi 600 MMA sjö keppendur til leiks.
Sex af keppendunum sjö eru nýliðar og voru að taka þátt í sínu fyrsta móti. Þeir Ívar Þorleifur Barkason, Óðinn Arnar, Guðlaugur Páll Magnússon, Davíð Senarin, Guðbjartur Sindri Vilhjálmsson og Viktor Baldvinsson hófu allir æfingar hjá 600 MMA í október og kepptu í flokki þeirra sem hafa minna en tveggja ára reynslu. Með keppni á þessu móti fengu þeir mikilvæga reynslu sem nýtist þeim í áframhaldandi æfingum og keppni.

Flokkur þeirra með mestu reynsluna. Hallór Logi Valsson á miðjum „verðlaunapallinum“, til vinstri er Breki Harðarson sem varð í 2. sæti og Þorgrímur Þórsson, sem varð í 3. sæti, er lengst til hægri.
Halldór Logi fékk gullverðlaun
Bestum árangri 600 MMA náði Halldór Logi Valsson, einn stofnenda félagsins. Hann keppti í flokki þeirra sem hafa meira en tveggja ára reynslu og vann allar viðureignir sínar með uppgjafartaki. Úrslitaviðureign Halldórs var gegn Akureyringnum Breka Harðarsyni, sem starfar sem þjálfari hjá Mjölni MMA í Reykjavík.
Þeim sem kepptu frá 600 MMA til halds og trausts voru þjálfararnir Erlendur Helgi Jóhannesson og Gunnar Þór Þórsson, sem er einnig einn stofnenda félagsins.
Íslandsmeistaramót næst á dagskrá
600 MMA er nýr bardagaíþróttaklúbbur á Akureyri og starfar í samstarfi við 600 Klifur. Til að byrja með er áherslan lögð á brasilískt jiu-jitsu og wrestling, og æfingarnar fara fram í húsnæði klifurhússins. Næsta verkefni hópsins er Íslandsmeistaramótið sem fram fer 22. nóvember.

Davíð Senarin í baráttunni, til vinstri. Til hægri: Halldór Logi Valsson hefur betur í úrslitum í flokki þeirra sem eru lengra komnir.

Frá vinstri: Gunnar Þór Þórsson þjálfari, Óðinn Arnar, Ívar Þorleifur Barkarson, Guðlaugur Páll Magnússon, Guðbjartur Sindri Vilhjálmsson, Viktor Baldvinsson, Erlendur Helgi Jóhannesson þjálfari, Davíð Senarin og Halldór Logi Valsson.