Fara í efni
Íþróttir

Sjálfstæðismenn kynna kosningaáherslur

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri opnaði kosningaskrifstofu sína í gær, sumardaginn fyrsta, og kynnti helstu stefnumál sín fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 14. maí n.k. Skrifstofan er í Sjallanum.

Helstu kosningaáherslur Sjálfstæðisflokksins eru þessar, að því er segir í tilkynningu:

  • Traust fjármálastjórnun verði í öndvegi og áhersla lögð á að lækka álögur á bæjarbúa.
  • Gjaldfrjáls vistun í leikskóla fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri.
  • Akureyrarbær verði áfram leiðandi í umhverfismálum. Skapaður verði vettvangur fyrir einkaaðila, fyrirtæki og stofnanir til að kolefnisjafna starfsemi sína.
  • Akureyrarbær losi um fjármagn sem bundið er í fasteignum.
  • Framboð íbúða- og atvinnulóða verði tryggt í sveitarfélaginu og efnt verði til hugmyndasamkeppni um uppbyggingu á Akureyrarvelli.
  • Stoðþjónusta í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar verði efld með aukinni viðveru sérfræðinga í skólunum.
  • Áfram verði tryggð góð þjónusta við fatlað fólk og eldri borgara. Akureyrarbær verði leiðandi í lausnum á sviði velferðartækni.
  • Stafræn þjónusta við íbúa og fyrirtæki verði aukin til muna.
  • Akureyrarbær verði áfram heilsueflandi samfélag þar sem sérstök áhersla verði lögð á lýðheilsu eldri borgara.
  • Frístundastyrkur hækkaður í 50.000 kr. og frístundastrætó verði komið á.
  • Áfram verði hlúð að starfsemi íþróttafélaga í sveitarfélaginu og leitað leiða til að mæta þörfum þeirra til frekari uppbyggingar.
  • Kynja- og jafnréttissjónarmið verði höfð að leiðarljósi í allri starfsemi Akureyrarbæjar.
  • Ráðist verði í átak til þess að fjölga íbúum og atvinnutækifærum í sveitarfélaginu.
  • Menningarlíf verði áfram atvinnuskapandi og fjölbreytt öllum bæjarbúum til ánægju og fróðleiks.

Akureyri.net mun að sjálfsögðu birta kosningastefnu allra framboðanna á Akureyri þegar þær verða kynntar.