Fara í efni
Íþróttir

Sjáið glæsimark Aldísar – MYNDBAND

Aldís Ásta Heimisdóttir tryggir KA/Þór sigur með stórkostlegu marki beint úr aukakasti eftir að leiktíminn var liðinn. Skjáskot af Vísi

Aldís Ásta Heimisdóttir kom KA/Þór áfram í undanúrslit Íslandsmótsins í handbolta í dag með frábæru marki beint úr aukakasti eftir að leiktíminn var liðinn, eins og Akureyri.net greindi frá. Staðan var 23:23 þegar Aldís Ásta tók að sér að taka síðasta skotið og gerði sér lítið fyrir að þruma boltanum yfir varnarvegginn og yfir markmanninn!

Leikurinn var sýndur beint á Stöð 2 Sport og hér er myndband sem birt var á Vísi. Sjón er sögu ríkari!