Fara í efni
Íþróttir

Sjáðu frábært mark Arons Einars í dag

Aron Einar fagnar marki sínu í leiknum í dag. Skjáskot af twitter færslu Al-Arabi.

Aron Ein­ar Gunn­ars­son gerði ævintýralegt mark þegar fyr­ir Al-Ar­abi sigraði Al-Kha­rit­iy­ath 3:1 í katörsku stjörnu­deild­inni í knattspyrnu í dag.

Landsliðsfyrirliðinn, nýrakaður bæði í andliti og á höfði, skoraði með skoti af eigin vallarhelmingi; hann lét vaða frá miðjuhringnum, af um 60 metra færi, þegar hann varð þess áskynja að markvörðurinn var fyrir utan vítateig. 

Sigur Al-Ar­abi var afar mikilvægur því liðin tvö voru neðst í deildinni, en með sigrinum komust lærisveinar Heimis Hallgrímssonar upp í níunda sæti af 12, en Al-Kharitiyath er neðst með sex stig.

Smelltu HÉR til að sjá markið