Fara í efni
Íþróttir

Sævar býður sig fram til formennsku í KSÍ

Ljósmynd af KA svæðinu: Þorgeir Baldursson

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi Knattspyrnusambandsins í lok mánaðarins.

„Síðustu vikur hef ég fengið fjölda áskorana um að bjóða mig fram til formanns KSÍ og eftir að hafa íhugað málið síðustu daga, er niðurstaða mín sú að gefa kost á mér í embættið, ekki síst með það að leiðarljósi að setja fótboltann aftur í fyrsta sætið hjá KSÍ og efla samskiptin við félögin í landinu,“ segir Sævar í tilkynningu. „Ég hef gegnt stöðu framkvæmdastjóra KA frá árinu 2011, þekki íslenska knattspyrnu afar vel, enda hef ég lifað og hrærst í íþróttahreyfingunni frá blautu barnsbeini og mun reynsla mín og þekking vondandi nýtast KSÍ vel.“

Meðal áhersluatriða Sævars eru skv. tilkynningunni:

  • Setja fótboltann aftur í fyrsta sætið hjá KSÍ.

Styðja verður við og efla allt starf innanlands í samstarfi við félögin sjálf. KSÍ verður að vera til staðar fyrir knattspyrnuna sjálfa og félögin. Ég vil taka þátt í umræðu um endurskoðun á öllum mótamálum fyrir deildir og yngri flokka. Efla verður samtal innan hreyfingarinnar um hvað má bæta og hvað vel er gert. Það er deginum ljósara að við höfum verið að dragast aftur úr hvað félagsliðin okkar varðar síðustu ár og þeirri þróun verður að snúa við, ekki síst með stuðningi við félögin sjálf.

  • Efla samskiptin við félögin í landinu.

Knattspyrnusamband Íslands hefur fjarlægst grasrótina of mikið, sjálfum félögunum og ég tel nauðsynlegt að efla þau tengsl og setja fótboltann aftur í fyrsta sætið.

  • Jafnrétti í forgrunni.

Halda áfram á braut jafnréttis innan knattspyrnunar og fylgja eftir jafnréttisstefnu og jafnréttisstefnu sambandsins. Skoða að setja upp átaksverkefni sem miðar að því að auka þátttöku kvenna á öllum stigum knattspyrnunar og tryggja með öllum hætti að kynjum sé ekki mismunað með neinum hætti innan KSÍ.

  • Minna bákn!

Rekstrarkostnaður KSÍ hefur aukist mikið síðustu ár og það þarf nauðsynlega að bæta reksturinn, gera hann hagkvæmari og skilvirkari. Halda áfram í þeirri vegferð að auka tekjur sambandis og byggja upp sterkt vörumerki. Nýta þarf fjármagnið til að fjárfesta í fótboltanum um allt land.

  • Stuðningur við landsbyggðina.

Miklu máli skiptir að aðildarfélög á landsbyggðinni njóti jafnræðis við félögin á höfðuðborgarsvæðinu þegar litið er til ferðakostnaðar og þá þjónustu sem knattspynusambandið veitir á hverjum tíma.

  • Nýr þjóðarleikvangur.

Það er mikil þörf á nýjum þjóðarleikvangi og við verðum að halda áfram að þrýsta á yfirvöld um uppbyggingu slíks vallar og leita allra leiða til að gera hann að veruleika fyrir íslenska knattspyrnu. Kanna þarf möguleika þess að byggja slíkan leikvang utan höfuðborgarinnar í samstarfi við ríki og sveitarfélög ef ekki þokast áfram með nýjan Laugardalsvöll.

  • Hlúa vel að umgjörðinni í kringum landsliðin.

Landslið Íslands sinna mikilvægu hlutverki innan Knattspyrnusambandsins og hafa skapað knattspyrnuhreyfingunni miklar tekjur undanfarin ár. Það er því afar mikilvægt að hlúa vel að allri umgjörð, efla og bæta starf í kringum landsliðin okkar og tryggja þeim varanlegt sæti meðal þeirra bestu.

  • Stöðva atgervisflótta og gera KSÍ að eftirsóttum vettvangi.

Mikill atgervisflótti hefur verið úr KSÍ síðustu vikur og hefur fjöldi starfsmanna og stjórnarmanna sagt skilið við hreyfinguna. Þessari þróun þarf að snúa við og tryggja að fólk vilji bæði starfa fyrir og starfa innan KSÍ ásamt því að tryggja að sú þekking og reynsla sem til staðar er haldist innan knattspyrnuhreyfingarinnar.

Fjölmörg önnur atriði eru á lista yfir atriði sem ég tel að KSÍ þurfi að endurskoða, vinna betur og taka upp og mun ég gera grein fyrir þeim eftir því sem nær dregur.