Fara í efni
Íþróttir

Rut, Unnur og Rakel Sara í landsliðinu

Hornamaðurinn ungi og stórefnilegi, Rakel Sara Elvarsdóttir, sem er í landsliðshópnum ásamt hinum þrautreyndu Rut Jónsdóttur og Unni Ómarsdóttur. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þrír leikmenn KA/Þórs, Rut Jónsdóttir, Unnur Ómarsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir, eru í A-landsliðshópnum í handbolta fyrir tvo leiki við Tyrki í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer á næsta ári. Val landsliðsþjálfaranna var tilkynnt í dag.

Landsliðið leikur gegn Tyrklandi ytra 2. mars og síðan á Ásvöllum í Hafnarfirði 6. mars. Liðið kemur saman til æfinga á föstudaginn og heldur liðið til Tyrklands næsta sunnudag en liðið leikur þar ytra í borginni Katamonu.

Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum - leikjafjöld og mörk í sviga.

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringköbing Håndbold (35/1)

Hafdís Renötudóttir, Fram (32/1)

Sara Sif Helgadóttir, Valur (3/0)

Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Kristianstad (27/7)

Berglind Þorsteinsdóttir, HK (8/5)

Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (30/31)

Elísa Elíasdóttir, ÍBV (2/0)

Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (10/8)

Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (47/80)

Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (86/96)

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, HK (3/7)

Lovísa Thompson, Valur (25/52)

Rakel Sara Elvarsdóttir, KA/Þór (3/2)

Rut Jónsdóttir, KA/Þór (104/215)

Sandra Erlingsdóttir, EH Aalborg (8/27)

Sunna Jónsdóttir, ÍBV (63/47)

Thea Imani Sturludóttir, Valur (50/77)

Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (34/32)

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (109/319)

Ragnheiður Júlíusdóttir leikmaður Fram gefur ekki kost á sér í verkefnið af persónulegum ástæðum.