Fara í efni
Íþróttir

Rut og Ásdís valdar í landsliðshópinn

Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir. Ljósmyndir: Þórir Tryggvason.

Tveir leikmenn KA/Þórs, Rut Jónsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir, eru í 19 manna hópi sem Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðsins, hefur valið fyrir æfingar vegna verkefnis síðari hluta mars. Ísland mætir þá Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi í undankeppni HM. Riðilinn fer fram í Norður-Makedóníu.

Vegna Covid-19 heimsfaraldursins er ekki hægt að velja leikmenn sem spila erlendis í landsliðshópinn að þessu sinni, en hópurinn er þannig skipaður - leikjafjöldi og mörk í sviga.

Markverðir:

Eva Dís Sigurðardóttir, Afturelding (0/0)

Sara Sif Helgadóttir, Fram (0/0)

Saga Sif Gísladóttir, Valur (0/0)

Aðrir leikmenn:

Ásdís Guðmundsóttir, KA/Þór (2/0)
Þessir tveir landsleikir Ásdísar sem HSÍ skráir, voru B-landsleikir gegn Færeyingum, að hennar sögn.

Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (58/118)

Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan (36/28)

Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (0/0)

Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (37/77)

Karen Knútsdóttir, Fram (102/369)

Lovísa Thompson, Valur (19/28)

Mariam Eradse, Valur (1/0)

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (26/27)

Rut Jónsdóttir, KA/Þór (94/191)

Steinunn Björnsdóttir, Fram (35/27)

Sunna Jónsdóttir, ÍBV (56/42)

Thea Imani Sturludóttir, Valur (40/54)

Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (0/0)

Unnur Ómarsdóttir, Fram (29/28)

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (28/14)