Fara í efni
Íþróttir

Rut Arnfjörð valin sú besta af HSÍ

Rut og sonur hennar, Gústaf Ólafsson, þegar Íslandsmeisturunum var fagnað á Akureyrarflugvelli í vor. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Rut Arnfjörð Jónsdóttir, besti leikmaður Íslandsmeistaraliðs KA/Þórs í fyrravetur, hefur verið valin handknattleikskona ársins 2021. Það er stjórn Handknattleikssambands Íslands sem velur og kemur ákvörðunin ekki á óvart.

Rut, sem er 31 árs örvhent skytta, varð „bæði Íslands- og deildarmeistari með KA/Þór á árinu en það voru fyrstu stóru titlar KA/Þórs frá stofnun félagsins. Hún skoraði 87 mörk í 14 leikjum fyrir félagið og var valin besti sóknarmaður og besti leikmaður Olísdeildar kvenna auk þess að fá Sigríðarbikarinn sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar valinn af þjálfurum,“ segir í tilkynningu frá HSÍ.

„Rut lék með yngri flokkum og meistaraflokki HK áður en hún hélt í atvinnumennsku til Danmerkur aðeins 18 ára gömul. Í Danmörku lék hún með Team Tvis Holstebro, Randers HK, FCM Håndbold og Team Esbjerg áður en hún kom aftur heim sumarið 2020 og hefur síðan leikið með KA/Þór. Rut varð danskur meistari með Esbjerg 2019 og Evrópumeistari (EHF-cup) með Holstebro 2013.

Rut hefur leikið 104 landsleiki og skoraði í þeim 215 mörk, auk þess hefur hún verið fyrirliði liðsins undanfarin misseri.

Þetta er í annað sinn sem Rut hreppir nafnbótina handknattleikskona ársins en hún var síðast valin 2013. Hún hefur alla tíð verið verið mikil fyrirmynd bæði innan og utan vallar þar sem bæði yngri eldri iðkendur líta upp til hennar.“

Handknattleikskarl ársins er Selfyssingurinn Ómar Ingi Magnússon, 24 ára hægri skytta Madgeburg í Þýskalandi og A landsliðs karla.